fbpx
Mánudagur 23.júní 2025
Pressan

Þessa ítölsku eyju má enginn heimsækja – Tugir þúsunda létust þar

Pressan
Miðvikudaginn 18. júní 2025 07:00

Poveglia.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ítalía býr yfir mörgum leyndardómum og fallegum stöðum. Rómarborg er auðvitað vettvangur heimssögunnar, Feneyjar með síkin sín eru gríðarlega vinsæll ferðamannastaður og litríku þorpin í Cinque Terre eru mögnuð upplifun.

Undan strönd Feneyja er eyja sem er sögð svo hryllileg og hættuleg að ferðamenn mega ekki heimsækja hana. Eyjan heitir Poveglia og samanstendur hún af þremur mismunandi hlutum. Einn er alþakinn gróðri, á öðrum eru hrörlegar byggingar og á þeim þriðja var eitt sinn virki.

Saga eyjunnar er allt annað en fögur því á átjándu öld var hún notuð sem einangrunarstöð þegar farsótt gekk yfir.

Þegar skip komu til Ítalíu 1793, og grunur lék á smiti um borð, var þeim beint til eyjunnar að sögn Walks of Italy. Aðrar einangrunarstöðvar voru fullar og Poveglia varð því fljótt staðurinn þar sem fórnarlömb farsóttarinnar voru vistuð.

Talið er að tugir þúsunda manna hafi látist þar og voru margir jarðsettir í svokölluðum „farsóttar-gryfjum“. Sögur herma einnig að ösku fórnarlambanna hafi verið blandað saman við jarðveginn á eyjunni.

Á tuttugustu öldinni var Poveglia breytt í geðsjúkrahús. Sögur segja að þar hafi læknar gert grimmdarlegar tilraunir á sjúklingum.

En það er ekki þetta sem gerir að verkum að ekki má fara til eyjunnar. Ástæðan er að byggingarnar þar eru í svo slæmu ásigkomulagi og óöruggar að mikil hætta stafar af þeim. Af þessum orsökum hafa yfirvöld bannað fólki að fara til eyjunnar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 22 klukkutímum

Foreldrarnir héldu að níu ára sonurinn væri bara þreyttur – Síðan kom niðurstaðan

Foreldrarnir héldu að níu ára sonurinn væri bara þreyttur – Síðan kom niðurstaðan
Pressan
Í gær

Andlát Hedviga Golik – Hvernig gat þetta átt sér stað?

Andlát Hedviga Golik – Hvernig gat þetta átt sér stað?
Pressan
Í gær

Líf eftir dauðann – Svona er að deyja

Líf eftir dauðann – Svona er að deyja
Pressan
Í gær

12 ára stúlka kallar eftir réttlæti vegna morðsins á föður sínum

12 ára stúlka kallar eftir réttlæti vegna morðsins á föður sínum
Pressan
Fyrir 2 dögum

Fékk áfall þegar hann komst að því að hann hefði gift sig án þess að vita af því

Fékk áfall þegar hann komst að því að hann hefði gift sig án þess að vita af því
Pressan
Fyrir 2 dögum

„Samþykkt af einræðisherra“ – Skúlptúr móðgar embætti forseta Bandaríkjanna

„Samþykkt af einræðisherra“ – Skúlptúr móðgar embætti forseta Bandaríkjanna
OSZAR »