fbpx
Mánudagur 23.júní 2025
Eyjan

Segist ekki trúa því að stjórnarandstaðan ætli með málþófi að hindra gríðarlega réttarbót fyrir fatlað fólk á Íslandi

Eyjan
Laugardaginn 21. júní 2025 19:05

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir þingmaður Flokks fólksins segist eiga erfitt með að trúa því að stjórnarandstaða Alþingis ætli að hindra lögfestingu á samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Um sé að ræða gríðarlega réttarbót sem beðið hafi verið eftir í tæp tuttugu ár.

Kolbrún skrifar í grein sem birtist hjá Vísi á föstudaginn:

„Þótt greinar frumvarpsins séu ekki margar er mikilvægast að verði frumvarpið að lögum hljóta allar fimmtíu greinar samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðra lagagildi á Íslandi. Þeir sem andmæla frumvarpinu finna því til foráttu að það leggi ófyrirséðan kostnað á herðar ríkisins meðal annars vegna mögulegra málaferla sem byggja muni á greinum samningsins í framtíðinni.

Það hvarflar ekki að sömu aðilum að nákvæmlega þessi sömu réttindi geta kallað á málaferli hjá ófötluðum Íslendingum virði stjórnvöld ekki lög sem almennt tryggja þessi sömu réttindi. Þá ætti lögleiðing samningsins að verða einni af ríkustu þjóðum heims hvatning til að tryggja að öll ákvæði samningsins verði uppfyllt eða á fatlað fólk að bíða fram í hið óendanlega eftir því?“

Kolbrún rekur að Ísland hafi undirritað samninginn í mars árið 2007 og fullgilt samninginn í september 2016. Enn eigi eftir að færa samninginn í lög. Mikilvægt sé að fatlað fólk geti sótt rétt sinn samkvæmt samningnum og eins muni löggilding samningsins hvetja opinbera aðila til dáða við að innleiða þá þætti samningsins sem upp á vantar.

„Það er erfitt að trúa því fyrr en á því er tekið að stjórnarandstaðan ætli með málþófi að koma í veg fyrir að frumvarpið nái fram að ganga. Hverjum af meginreglum samningsins væru sömu þingmenn reiðubúnir að fórna gagnvart þeim sjálfum og öllum öðrum í samfélaginu?“

Meginreglur samningsins feli meðal annars í sér að virðing sé borin fyrir reisn og sjálfræði einstaklinga, bann við mismunun, fulla þátttöku í samfélagi án aðgreiningar, virðingu fyrir fjölbreytni, að fatlaðir fái að njóta jafnra tækifæra og að aðgengi sé tryggt.

„Allt eru þetta réttindi sem þykja sjálfsögð til handa ófötluðu fólki og ættu að vera sjálfsögð á Íslandi, sem hefur verið í hópi tíu ríkustu þjóða heims um langt skeið. Með samþykkt frumvarpsins yrði stigið eitt stærsta framfaraspor í réttindum fatlaðs fólks á Íslandi frá upphafi.“

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Raquelita Rós ráðin tæknistjóri Itera á Íslandi

Raquelita Rós ráðin tæknistjóri Itera á Íslandi
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Segir Moggann fara með fleipur – „Langt því frá fordæmalaus“

Segir Moggann fara með fleipur – „Langt því frá fordæmalaus“
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Segist þreyttur á skítadreifurum Sjálfstæðisflokksins – „Eina sem núverandi dómsmálaráðherra gerði var að þrífa upp“

Segist þreyttur á skítadreifurum Sjálfstæðisflokksins – „Eina sem núverandi dómsmálaráðherra gerði var að þrífa upp“
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Orðið á götunni: Formaður Samtaka í sjávarútvegi segir af sér – klofningur í röðum sægreifa vegna hroka og græðgi sumra þeirra

Orðið á götunni: Formaður Samtaka í sjávarútvegi segir af sér – klofningur í röðum sægreifa vegna hroka og græðgi sumra þeirra
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Oddný var ekki látin vita að hún yrði ráðherra – „Það kom yfir mig einhver svona dauðadoði“

Oddný var ekki látin vita að hún yrði ráðherra – „Það kom yfir mig einhver svona dauðadoði“
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Björn Jón skrifar: Alvöru leiðtogi

Björn Jón skrifar: Alvöru leiðtogi
Eyjan
Fyrir 1 viku

Sverrir Jónsson ráðinn skrifstofustjóri Alþingis

Sverrir Jónsson ráðinn skrifstofustjóri Alþingis
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þorbjörg stendur við skammirnar í garð Ingibjargar – „Virðing virkar í báðar áttir“ – Myndband

Þorbjörg stendur við skammirnar í garð Ingibjargar – „Virðing virkar í báðar áttir“ – Myndband
OSZAR »